571 6007
VILTU LÆRA AÐ FLJÚGA
Næsta Bóklega námskeið (PPL and LAPL) hefst 3. jan 2025 . Sendu okkur póst á flugmennt@flugmennt.is og skráðu þig
Við bjóðum upp á tvær leiðir til að fá réttindi flugmanns.
LAPL skírteini.
LAPL skírtenið er fullkomið fyrir flugáhugamanninn. Fljúgðu frjáls sem fuglinn með vini og vandamenn.
Námið samanstendur af 30 flugtímum með kennara á C152 eða C172 og bóklegu námskeiði.
(LAPL skírteini gefur þér réttindi til að fljúga allt að 4 sæta flugvél með farþega um land allt)
PPL skírteini.
PPL skírteini gefur þér réttindi til að fljúga stærri og öflugri vélum en LAPL og er fyrsta skrefið í átt að atvinnuflugmannsskírteini ef hugurinn leitar þangað.
Námið samanstendur af 45 flugtímum með flugkennara og bóklegu námskeiði.
Athugið að tímar að ofan eru lágmarkstímar samkvæmt reglugerðakröfum, oft þarf meira :).
Heyrðu í okkur!
s. 571-6007
FLUGMENNT - ÞOTULIÐIÐ
Hvað höfum við að bjóða
UM FLUGMENNT
Flugmennt er flugskóli og flugklúbbur sem býður upp á flugkennslu til einkaflugmanns PPL(A) og Næturflugsáritunar og endurnýjun skírteina. Flugklúbbsmeðlimir hafa aðgang að fimm flugvélum. TF-JET (C150), TF-AVA (C152), TF-AOA (C152), TF-NES (C172) og TF-TOD (PA28-140). Við erum í Fluggörðum á Reykjavíkurflugvelli (BIRK) og á Selfossflugvelli (BISF)